1 Corinthians 10

1Ég vil ekki, bræður, að yður skuli vera ókunnugt um það, að feður vorir voru allir undir skýinu og fóru allir yfir um hafið. 2Allir voru skírðir til Móse í skýinu og hafinu. 3Allir neyttu hinnar sömu andlegu fæðu 4og drukku allir hinn sama andlega drykk. Þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi þeim. Kletturinn var Kristur. 5En samt hafði Guð enga velþóknun á flestum þeirra og þeir féllu í eyðimörkinni. 6Þessir hlutir hafa gjörst sem fyrirboðar fyrir oss, til þess að vér verðum ekki sólgnir í það, sem illt er, eins og þeir urðu sólgnir í það. 7Verðið ekki skurðgoðadýrkendur, eins og nokkrir þeirra. Ritað er: ,,Lýðurinn settist niður til að eta og drekka, og þeir stóðu upp til að leika.`` 8Drýgjum ekki heldur hórdóm, eins og nokkrir þeirra drýgðu hórdóm, og tuttugu og þrjár þúsundir féllu á einum degi. 9Freistum ekki heldur Drottins, eins og nokkrir þeirra freistuðu hans, þeir biðu bana af höggormum. 10Möglið ekki heldur eins og nokkrir þeirra mögluðu, þeir fórust fyrir eyðandanum. 11Allt þetta kom yfir þá sem fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn yfir. 12Sá, er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki. 13Þér hafið ekki reynt nema mannlega freistingu. Guð er trúr og lætur ekki freista yðar um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðist. 14Fyrir því, mínir elskuðu, flýið skurðgoðadýrkunina. 15Ég tala til yðar sem skynsamra manna. Dæmið þér um það, sem ég segi. 16Sá bikar blessunarinnar, sem vér blessum, er hann ekki samfélag um blóð Krists? Og brauðið, sem vér brjótum, er það ekki samfélag um líkama Krists? 17Af því að brauðið er eitt, erum vér hinir mörgu einn líkami, því að vér höfum allir hlutdeild í hinu eina brauði. 18Lítið á Ísraelsþjóðina. Eiga þeir, sem fórnirnar eta, ekki hlut í altarinu? 19Hvað segi ég þá? Að kjöt fórnað skurðgoðum sé nokkuð? Eða skurðgoð sé nokkuð? 20Nei, heldur að það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði. En ég vil ekki, að þér hafið samfélag við illa anda. 21Ekki getið þér drukkið bikar Drottins og bikar illra anda. Ekki getið þér tekið þátt í borðhaldi Drottins og borðhaldi illra anda. 22Eða eigum vér að reita Drottin til reiði? Munum vér vera máttugri en hann? 23Allt er leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt. Allt er leyfilegt, en ekki byggir allt upp. 24Enginn hyggi að eigin hag, heldur hag annarra. 25Allt það, sem selt er á kjöttorginu, getið þér etið án nokkurra eftirgrennslana vegna samviskunnar. 26Því að jörðin er Drottins og allt, sem á henni er. 27Ef einhver hinna vantrúuðu býður yður og ef þér viljið fara, þá etið af öllu því, sem fyrir yður er borið, án eftirgrennslana vegna samviskunnar. 28En ef einhver segir við yður: ,,Þetta er fórnarkjöt!`` þá etið ekki, vegna þess, er gjörði viðvart, og vegna samviskunnar. 29Samviskunnar, segi ég, ekki eigin samvisku, heldur samvisku hins. En hvers vegna skyldi frelsi mitt eiga að dæmast af samvisku annars? 30Ef ég neyti fæðunnar með þakklæti, hvers vegna skyldi ég sæta lasti fyrir það, sem ég þakka fyrir? 31Hvort sem þér því etið eða drekkið eða hvað sem þér gjörið, þá gjörið það allt Guði til dýrðar. 32Verið hvorki Gyðingum né Grikkjum né kirkju Guðs til ásteytingar. 33Ég fyrir mitt leyti reyni í öllu að þóknast öllum og hygg ekki að eigin hag, heldur hag hinna mörgu, til þess að þeir verði hólpnir.
Copyright information for Icelandic